Keppnin
Klaustur Off-Road Challenge er 6 tíma þolakstursmót. Keppnin er haldin á landi bjæarins Ásgarðs sem er rétt fyrir utan Kirkjubæjarklaustur. Startað er kl. 12 á hádegi og byrjað er að flagga keppendur út kl. 18. Árið 2018 verður keppnin haldin laugardaginn 26. maí. Ef þú hefur gaman af því að aka torfæruhjóli er þetta klárlega viðburður fyrir þig og mögulega alla fjölskylduna. Þú skalt alls ekki láta orðin “mót“ eða “keppni“ draga þig frá því að taka þátt. Keppnin er í raun mjög góð afsökun fyrir því að koma saman og eiga góðan hjóladag. Að sama skapi þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hafa ekki nógu mikla reynslu eða getu á hjólinu. Brautin er öllum fær. Í brautinni eru ekki þrautir sem krefjast mikillar reynslu og þekkingar. Brautin er að mestu leyti í grashólum og á sandeyrum. Grjótbrölt og þverbrattar brekkur er ekki að finna í þessari braut. Þetta hefst svo allt saman án þess að það komi niður á skemmtanagildinu. Hér neðar á síðunni geturðu séð hvaða flokkar eru í boði og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að taka þátt. Ef þú ert yngri en 14 ára, skaltu smella á "Barnakeppni" efst á síðunni og sjá hvort að þú getir ekki verið með í barnakeppninni. Skráning fer fram á heimasíðu MSÍ. Til þess að geta skráð þig þarft þú og liðsfélagar þínir að vera greiddir meðlimir í akstursíþróttafélagi innan MSÍ. Á höfuðborgarsvæðinu ber helst að nefna VÍK og MotoMos. Í vesturátt er hægt að leita til VÍFA uppi á Skaga. Fyrir austan fjall eru það UMF Selfoss/Þór Þorlákshöfn eða Hreppakappar í Hrunamannahreppi. Fyrir norðan er það KKA á Akureyri og austan er það Start á Egilstöðum auk annarra félaga víðs vegar um landið. Leitið til ykkar félags um nánari upplýsingar varðandi greiðslu félagsgjalda og aðgang að síðu MSÍ. Ef VÍK er ykkar félag, sendið þá póst á vik@motocross.is Skráðu þig, farðu yfir hjólið og svo sjáumst við á Klaustri. Þú sérð ekki eftir því.
Eftirfarandi flokkar eru í boði í Klaustur Off-Road Challenge
Járnkallinn / Járnkonan
Hér keppa hörðustu kallarnir og hörðustu konurnar.
1 keppandi
1-2 hjól
Verðlaun fyrir 1, 2, 3 sæti
Tvímenningur
Vinsælasti flokkurinn
2 keppendur
1-2 hjól
Verðlaun fyrir 1, 2, 3 sæti
Kvennaflokkur
Bara fyrir stelpurnar
2-3 keppendur
1-3 hjól
Verðlaun fyrir 1, 2, 3 sæti
Þrímenningur
Auðveldasti
3 keppendur
1-3 hjól
Verðlaun fyrir 1, 2, 3 sæti
Afkvæmaflokkur
Foreldri og barn (14+)
2 keppendur
1-2 hjól
Verðlaun fyrir 1, 2, 3 sæti
Paraflokkur
Hjón eða par
2 keppendur
1-2 hjól
Verðlaun fyrir 1, 2, 3 sæti
90+
Samanlagður aldur keppenda skal vera yfir 90 árum og yngri keppandinn verður að hafa náð 35 ára aldri. Dagurinn gildir.
2 keppendur
1-2 hjól
Verðlaun fyrir 1 sæti
100+
Samanlagður aldur keppenda skal vera yfir 100 árum og yngri keppandinn verður að hafa náð 50 ára aldri. Dagurinn gildir.
2 keppendur
1-2 hjól
Verðlaun fyrir 1 sæti
135+
Samanlagður aldur keppenda skal vera yfir 135 árum og yngsti keppandinn verður að hafa náð 35 ára aldri. Dagurinn gildir.
3 keppendur
1-3 hjól
Verðlaun fyrir 1 sæti
150+
Samanlagður aldur keppenda skal vera yfir 150 árum og yngsti keppandinn verður að hafa náð 50 ára aldri. Dagurinn gildir.
3 keppendur
1-3 hjól
Verðlaun fyrir 1 sæti